Gleðifréttir
Gullborg hefur hlotið 3 styrki úr þróunar-og nýsköpunarsjóði skóla og frístundaráðs. Látum drauma rætast fyrir skólaárið 2022 og 2023.
1.Gullborg, Grandaborg, Ægisborg í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fengu styrk fyrir verkefnið Leikur, nám og gleði. Í verkefninu verður lögð áhersla á að styrkja starfsfólk leikskólanna með fræðslu og umræðum hvernig leggja megi mun meiri áherslu á leik barna sem aðalnámsleið. Verkefnið er áætlað til 2ja ára
2. Gullborg, Ævintýraborg Eggertsgötu, Laugasól, Vinagerði og Ævintýraborg Nauthólsveg fengu styrk fyrir verkefnið Réttindi barna á Íslandi. Markmiðið er að innleiða ákvæði Barnasáttmála í samstarfi við UNICEF og Hákskóla Íslands. Verkefnið er áætlað til 3ja ára.
3. Gullborg, Grandaborg og Ægisborg fengu styrk sem veittur er árlega úr A hluta Menntastefnu Reykjavíkur en það samstarff er búið að vera árlegt frá því að Menntastefna Reykjavíkur leyt dagsins ljós. Markmið samstarfsins er að efla sjálfbærni og félagsfærni barna á þessum 3ja leikskóla.